Viðtal á Bylgjunni í morgunn 3nov

c_mitt_heidar_03_1_nv_06_buttercup.jpg

Já ég verð að segja ykkur frá því að ég (Heiðar) og Valur mættum í viðtal á Bylgjunni í morgunn hjá honum Ívari Fittnesströlli.  Ég læt linkinn fylgja með þannig að þið getið hlustað á þetta.  þeir á Bylgjunni voru búnir að hlusta á diskinn og vildu enilega fá okkur í smá spjall.  Og að sjáfsögðu gerðum við það.

http://bylgjan.is/?PageID=1091&NewsID=1818

Capone gefur okkur 4 stjörnur af fimm...

Já þeir Capone bræður tóku út diskinn okkar, 1500 dagar og gerðu honum góð skil í þætti sínum mánudaginn 31okt.  Þeir fóru yfir lögin og dæmdu þau ásamt því að leyfa hlustendum að segja hvað þeim finnst.  Þetta var svolítð óvænt fyrir okkur þar sem okkur datt alldrei í hug að X-Fm myndu taka út diskinn okkar eða hlusta á hann.  Þannig að þetta er mikil viðurkenning fyrir okkur.  Að vísu er diskurinn mun rokkaðari en menn héldu.  Þá erum við ekki að tala um e-ð brjálað rokk heldur bara gott rokk & rol. 

Okkur var svo boðið í dag í viðtal á Rás 2 hjá honum Óla Palla.  Vorum hjá kallinum í einhverjar 20 mín þar sem hann fór yfir diskinn og yfirheyrði okkur.  Hvað við erum búnir að gera og hvernig diskurinn var búin til.  Hann talaði líka um það að diskurinn væri rokkaðari en hann hafi búist við.  Óli var mjög sáttur við diskinn og sagði að þetta væri virkilega flott hjá okkur og flott lög.   Ef að Capone og Óli Palli eru nú farnir að fíla Buttercup þá er það viss saga til næsta bæjar.

HK


Nýr diskur loksins kominn út

Já gott fólk, þá hefur nýji diskurinn okkar verið gefinn út.  Afurðin heitir 1500 dagar og gáfum við okkur alla í þennan disk sem er að okkar mati sá besti hingað til.  Segir maður þetta ekki alltaf?  En það sem við gerðum öðruvísi í þetta skiptið er að núna voru lögin betur valin.  Ég vei ekki hvort þið vitið það að með svona diska þar sem þeir innihalda 10-12 lög þá hefur kannski veirð samin 20-22 lög fyrir diskinn.  Svo er þetta æft og útsett og yfirleitt þá kemur það í ljós hvort að lagið sé nógu sterkt til að vera á disknum.  þannig að við gerðum það núna, vorum kröfuharðir á lögin og helyptum engum lögum að sem við vorum ekki 100% sáttir við.  Hvað varðar lagasmíði og textagerð þá held ég að við höfum alldrei unnið eins vel í því og núna.  Enda búnir að gefa okkur góðan tíma í þetta.

Og hvað svo?  það er alveg ljóst að við erum ekki að fara túra um landið.  það er líka búið að loka flestum húsum sem voru með svona Sveitaböll eins og við flest þekkjum það.  Núna er það bara pöbbastemningin.  Því miður.  Því Sveitaböll voru alltaf það skemmtileg.  Við munum koma fram hér og þar á næstunni.  Viðtöl í útvarpi, viðtöl í sjónvarpi, blaðagreinar og fl.  Okkur er í raun alveg saman hvort þessi diskur seljist eða ekki.  Ef að fólk vill stela þessu efni þá er það bara frábært.  Bara ef fólk vill hlusta á þetta þá erum við ánægðir.

HK


Lífið heldur áfram...

Páskafríið afstaðið og lífið heldur áfram.  Þetta var ágætis frí nema Dabbi gítarleikari sem er stundum ofvirkur,  var upp í plássi um helgina og var að klippa og mixa lögin okkar.  þannig er nefnilega hátturinn á þessu hjá okkur, að við tökum þetta sjáfir allt saman upp, mixum og sendum þetta svo í Masteringu.  Þetta er þvílíkur kostur þar sem við getum leikið okkur betur með hvert lag.  Við keyptum okkur ProTools Digi002 þannig að við erum að taka þetta upp í toppgæðum.  það vantar ekki.  Alveg eins og við gerðum núna með "á leiðinni heim"  okkur fannst það ekki hljóma nógu vel þannig að við tókum það aftur upp.  Þessu hefðu menn ekki týmt hér í gamla daga þegar við vorum bara með ákveðið Buget og lögin látin stand frekar en að taka þau upp aftur.  Fyrir utan hvað þetta er mikill peningalegur sparnaður.  Við gefum diskinn okkar út sjáfir sem er mikill kostur í stað þess að fara í gegnum útgefanda sem tekur allt saman til sín.   Við erum líka að leita að nafni á diskinn okkar þannig að allar hugmyndir eru vel þeignar.

Upptökur halda áfram...

Jæja gott fólk.  Þá er það framhaldssagan.  En þannig er að upptökur standa yfir núna og er hann Valur að klára að singja tvö lög í kvöld.  þannig að 10 lög á nýja diskinn eru að verða klár.  Það skemmtilega vildi til að við áttum fullt af gömlum lögum, og við tókum okkur til og hlustuðum á þau.  Tvö af þessum lögum verða á nýja diskinum og eru þau bæði frá þeim tíma er við vorum að byrja.  þannig að það er nettu "Grunge" fílingur í þeim báðum.  Bullandi rock.  Við förum að leyfa ykkur að heyra þetta bráðum.


Á leiðinni heim...

Fyrsta lagið sem fer í spilun á væntanlegum disk okkar heitir: "Á leiðinni heim", og var tekið upp í gær í annað skipti þar sem menn voru ekki alveg sáttir við fyrri útgáfu.  Þ.a.l. verður aðeins lengri bið á því að það fari í spilun.  Við viljum samt gera þetta vel í stað þess að henda einhverju í loftið.   Lagið sjálft er mjög þægilegt popplag en diskurinn sjálfur er í rokkaðari kantinum.  Þeir sem hafa heyrt lögin segja að þetta sé mun metnaðarfyllra en það sem við höfum gert áður.  Enda höfum við eytt mun meiri tíma í hvert lag og leikið okkur með útsetningar á þeim og þannig fundið oft skemmtilegri hljóm á þessu öllu saman.  Við höfum samið fjölda laga og þannig gátum við valið og hafnað lögum af meiri kostgæfni en oft áður.   Þetta lítur allt mjög vel út.


Jæja jæja

Loksins er Buttercup komin í loftið aftur eftir langt hlé.  Já hljómsveitin er ekki allveg dauð úr öllum æðum.  Þessa dagana er unnið að geisladisk sem lítur dagsins ljós í sumar.  Við höfum gefið okkur góðan tíma í þetta og ætlum okkur að skila góðu efni til hlustenda okkar.

Núna erum við bara strákarnir að þessu.  Kjarninn sem hefur myndað þetta band alla tíð.  Fyrsta lagið er á leiðinni í spilun næstu daga og það verður gaman að fylgjast með því hvernig okkur verður tekið aftur.  Auðvitað höfum við breyst aðeins og vonandi til hins betra.

 Þið fylgist með.

 Kær kveðja Buttercup.


Um bloggið

Buttercup

Höfundur

Buttercup
Buttercup
Hljómsveitin Buttercup

Spurt er

Hvað á diskurinn að heita hjá okkur
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...6_buttercup
  • Úr myndbandi
  • Dabbi
  • Ball
  • Ball

Tónlist

Tónlist okkar..

Hér getið þið hlustað á brot úr lögum okkar. http://www.tonlist.is/ViewArtist.aspx?AuthorID=3098


Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (13.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband