Buttercup

Hljómsveitin Buttercup er búin að vera til í tæp tíu ár,
en það var í lok árs 1996 sem að Heiðar Kristinsson, Davíð Þór Hlinason,
Símon Jakobsson og Valur Heiðar Sævarsson komu fyrst saman.

Hefur bandið þróast frá þeim tíma frá Grunge rokki yfir í í það popp-rokk
sem einkennir hana núna.

Fyrsta árið fór mestmegnis í allskyns tilraunastarfsemi með frumsamið efni
en síðan það ár leið þá hefur hljómsveitin verið ein af duglegustu sveitaballa
hljómsveitum landsins og ekki slegið slöku við í þeim efnum.

Hljómsveitin hefur gefið út fjórar plötur á ferli sínum ásamt því að hafa tekið
þátt í fjölda safnplatna. Fyrsta platan (1998) sem var gefin út heitir Meira,
innihélt hún lög eins og Meira dót og Mér er sama,

síðan kom út platan Allt á útsölu (1999) með lög eins og Búinn að fá nóg og Aleinn,
eftir gott samstarf við Írisi Kristinsdóttir við gerð plötunnar Allt á útsölu
þá var í kjölfarið ákveðið að fá hana inn í hljómsveitina sem annan söngvara
og ásláttarleikara.

Gáfum við út plötuna Buttercup.is jólin 2000 og má eiginlega
segja að sú plata hafi tekið Buttercup þangað sem hún er í dag með lögum eins og
"Endalausar nætur", "Hvenær" og "Aldrei".

Um áramótin 2000/2001 hætti Heiðar trommari í bandinu út af fjölskyldu ástæðum
og við trommustólnum tók Egill Rafnsson, hann stoppaði stutt við og ákvað
Heiðar í kjölfarið að koma aftur. Í lok árs 2001 var gefin út platan Öll ljós kveikt (lög eins og Von og Öll ljós kveikt.

Um áramótin 2001 hætti Íris Kristinsdóttir í bandinu og við henni tók ung og frábær söngkona að nafni Rakel Sif.

En í dag árið 2006 erum við strákarnir bara að þessu sem hefur verið kjarninn í bandinu alla tíð.

Um bloggið

Buttercup

Höfundur

Buttercup
Buttercup
Hljómsveitin Buttercup

Spurt er

Hvað á diskurinn að heita hjá okkur
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...6_buttercup
  • Úr myndbandi
  • Dabbi
  • Ball
  • Ball

Tónlist

Tónlist okkar..

Hér getið þið hlustað á brot úr lögum okkar. http://www.tonlist.is/ViewArtist.aspx?AuthorID=3098


Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (13.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband