27.10.2006 | 17:27
Nýr diskur loksins kominn út
Já gott fólk, þá hefur nýji diskurinn okkar verið gefinn út. Afurðin heitir 1500 dagar og gáfum við okkur alla í þennan disk sem er að okkar mati sá besti hingað til. Segir maður þetta ekki alltaf? En það sem við gerðum öðruvísi í þetta skiptið er að núna voru lögin betur valin. Ég vei ekki hvort þið vitið það að með svona diska þar sem þeir innihalda 10-12 lög þá hefur kannski veirð samin 20-22 lög fyrir diskinn. Svo er þetta æft og útsett og yfirleitt þá kemur það í ljós hvort að lagið sé nógu sterkt til að vera á disknum. þannig að við gerðum það núna, vorum kröfuharðir á lögin og helyptum engum lögum að sem við vorum ekki 100% sáttir við. Hvað varðar lagasmíði og textagerð þá held ég að við höfum alldrei unnið eins vel í því og núna. Enda búnir að gefa okkur góðan tíma í þetta.
Og hvað svo? það er alveg ljóst að við erum ekki að fara túra um landið. það er líka búið að loka flestum húsum sem voru með svona Sveitaböll eins og við flest þekkjum það. Núna er það bara pöbbastemningin. Því miður. Því Sveitaböll voru alltaf það skemmtileg. Við munum koma fram hér og þar á næstunni. Viðtöl í útvarpi, viðtöl í sjónvarpi, blaðagreinar og fl. Okkur er í raun alveg saman hvort þessi diskur seljist eða ekki. Ef að fólk vill stela þessu efni þá er það bara frábært. Bara ef fólk vill hlusta á þetta þá erum við ánægðir.
HK
Um bloggið
Buttercup
Spurt er
Myndaalbúm
Tónlist
Tónlist okkar..
Hér getið þið hlustað á brot úr lögum okkar. http://www.tonlist.is/ViewArtist.aspx?AuthorID=3098
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (14.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.